Fara í efni

Vinnustofur í Bandaríkjunum

Íslandsstofa skipuleggur vinnustofur í suðurhluta Bandaríkjanna dagana 14.-16. febrúar 2017. Heimsóttar verða borgirnar Miami, Tampa og Dallas/ Ft. Worth. Auk Íslandsstofu er hugsanlegt að ferðamálaráð Færeyja og Grænlands taki þátt.

Á vinnustofunum gefst íslenskum fyrirtækjum í ferðaþjónustu tækifæri til að hitta ferðasöluaðila á viðkomandi svæðum og stofna til nýrra viðskiptasambanda.

Athygli er vakin á að vinnustofur á þessu svæði hafa verið mjög vel sóttar á undanförnum árum. Öllum umsóknum verður svarað þegar umsóknarfresturinn er liðinn. Áhugasamir eru beðnir að fylla út skráningareyðublað á vef íslandsstofu og senda útfyllt á netfangið margret@islandsstofa.is fyrir 4. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veita Margrét Helga Jóhannsdóttir, margret@islandsstofa.is og Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is