Garðabæjarhringur Gönguleið

Skemmtilegur 7 km hringur þar sem komið er víða við í Garðabænum.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Við Vídalínskirkju
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Leiðin hefst við Vídalínskirkju, en tilvalið er að byrja eða enda gönguna á því að skoða Minjagarðinn að Hofsstöðum. Þar var grafið niður á einn stærsta landnámsskála sem fundist hefur á Íslandi. Gengið er eftir íbúðargötum og Holtstúni þar sem Sankti Jósefssystur bjuggu allt fram til ársins 1998. Á leiðinni upp að Vífilsstaðavatni má sjá Vífilsstaði þar sem starfrækt var berklahæli frá árinu 1910 uns berklum var að mestu útrýmt á Íslandi. Næst er gengið í áttina að Vífilsstaðahlíð og þaðan í áttina að Urriðaholti. Ganga þarf stuttan spöl í kantinum á Flóttamannaveginum áður en komið er inn á stíginn við Urriðaholt en hús Náttúrufræðistofnunar blasir þar við á leiðinni. Gengið er yfir brúna sem liggur yfir Hafnarfjarðarveg og að stíg sem þverar úfið Garðahraunið. Leiðin liggur svo í gegnum íbúðahverfið í Flötum og aftur að Vídalínskirkju þar sem gangan hófst.