Vatnahringurinn í Heiðmörk Gönguleið

Vatnahringurinn í Heiðmörk er falleg göngu- og hlaupaleið, merkt með bláum stikum, sem liggur fram hjá nokkrum vötnum og fræðsluskiltum um fjölbreytta flóru, fánu og jarðfræði svæðisins.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Bílastæðið við Helluvatn eða Borgarstjóraplan í Heiðmörk
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Í Heiðmörk er að finna ótal göngustíga í dásamlegu umhverfi og leiðirnar eru vel merktar. Vatnahringurinn er 7,5 km göngu-, hlaupa- eða hjólaleið í Heiðmörk sem er merkt með bláum stikum. Á bíl er ekið inn í Heiðmörk eftir Rauðhólavegi frá Suðurlandsvegi. Hægt er að leggja á bílastæðinu við Helluvatn eða við Borgarstjóraplan. Fleiri bílastæði er einnig að finna í Heiðmörk. Á þessari leið er gengið fram hjá Elliðavatni og nokkrum minni vötnum eins Helluvatni, Hraunhúsatjörn og Myllulækjatjörn. Fræðsluskilti með ýmiss konar fróðleik um fugla, plöntur, tré, jarðfræði og sögu svæðisins hafa verið sett upp af Skógræktarfélagi Reykjavíkur á leiðinni og eru skiltin prýdd fallegum teikningum. Heiðmörk er í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur sem eru frjáls félagasamtök. Nánari upplýsingar um svæðið má finna á heidmork.is.