Helgafell Hafnarfirði

Gangan upp Helgafellið er ein sú vinsælasta á höfuðborgarsvæðinu og er nokkuð auðveld þrátt fyrir að hún sé brött á köflum. Þegar upp á topp er komið má sjá stórkostlegt útsýni til allra átta.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Bílastæði við Helgafell
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Vörðuð leið með hlöðnum steinum
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Hægt er að losa sorp við bílastæði
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Helgafellið við Kaldárbotna í Hafnarfirði (338 m) er afar vinsæl gönguleið og er hægt að fara fleira en eina leið upp á fjallið. Sú leið sem algengust er hefst við nýtt og vel merkt bílastæði og þaðan sést stígurinn að fjallinu greinilega. Gengið er framhjá vatnsbólum Hafnfirðinga í Kaldárbotnum og svo áfram þar sem greinilegar vörður leiða þig að uppgöngunni á fjallið. Leiðin upp er nokkuð brött þó hún sé nokkuð auðveld og gengið er um þröngt gil í klettunum í fjallinu. Helgafellið er móbergsfjall sem myndaðist við eldgos undir jökli seint á síðustu ísöld. Undirlagið því fast undir fæti og þægilegt til göngu. Það gerir það að verkum að ekki eru skýrir stígar á leiðinni upp fjallið. Leiðin er samt nokkuð greinileg og eru vörður á nokkrum stöðum til þess að vísa veginn. Þegar komið er á topp Helgafells má sjá stórkostlegt útsýni í allar áttir og árið 2019 var komið fyrir stöpul með upplýsingaskífu, sem var gjöf Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar, með nöfnum fjalla sem eru í kring. Á stöpplinum má einnig finna erindi úr ljóði Tómasar Guðmundssonar Fjallganga. Áður en gengið er niður er mikilvægt að skrifa nafnið í gestabókina sem er þar að finna. Gengið er tilbaka sömu leið niður og er mikilvægt að fara farlega sérstaklega þegar farið niður gilið í skarðinu.