Helgafell í Mosfellsbæ Gönguleið

Gangan á Helgafell er skemmtileg og stutt þar sem njóta má útsýnis yfir Esjuna, Mosfellsbæ og vestari hluta höfuðborgarsvæðisins. Gönguleiðin er upp á topp Helgafells og svo sömuleið niður tilbaka.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Bílastæði við Helgafell
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
  • Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Skemmtileg og þægileg gönguleið þaðan sem sést vel norður til Esjuhlíða, yfir Mosfellsbæ og vestari hluta höfuðborgarsvæðisins. Helgafell er í 217 metra hæð yfir sjávarmáli og hefst gönguleiðin við upplýsingaskilti við Þingvallaveg þar sem ýmsar fróðlegar upplýsingar um svæðið er að finna. Frá bílastæðinu sést líka greinilega mörkuð leið upp fellið, merkt appelsínugulum stikum. Áður en lagt er á brattann má sjá litla laut í fjallinu. Þetta eru leifar frá því að hér var grafið eftir gulli rétt um aldamótin 1900 en því miður án árangurs. Þegar upp er komið blasir við fallegt útsýni yfir Hafravatn og Bláfjöll og uppi á fellinu er einnig að finna rústir af varðbyrgi frá hernámsárunum. Hægt er að halda áfram göngunni austur fellið og ganga hring en hér er gengin sama leið aftur að bílastæðinu. Gott er að gæta sín þegar farið er niður því efnið í stígnum er laust.