Hólmahringur Elliðaárdal
Tilvalin fjölskylduganga um fallega Hólmann í Elliðaárdal.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
64.11996, -21.83804 Bílastæði Elliðaárdal
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Skemmtilegur og stuttur hringur um Hólmann í Elliðarárdal sem er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna.
Gengið er upp frá Elliðaárstöð með fram slóða sem liggur í gegnum skógræktina. Áður en komið er að Rafveituheimilinu þá er beygt til hægri yfir trébrú og stíg sem liggur til vinstri fylgt áfram að Kermóafossum. Gaman er að ganga niður að fossinum og bera hann augum enda ákaflega fallegur. Göngunni er svo haldið áfram eftir stígnum í Hólmanum. Í nokkrum skógarrjóðrum á leiðinni má sjá hönnunarinnsetningar sem komið hefur verið fyrir, það er því um að gera að fara örlítið út af leið til þess að skoða og njóta þeirra. Leiðin endar svo aftur þar sem gangan hófst. Eftir gönguna er ákaflega gaman að skoða sig um svæðið við Elliðaárstöð þar sem mikil uppbyggin hefur verið undanfarin ár og má þar meðal annars finna kaffihús og skemmtilegan leikvöll.