Húsafell-Kaldárbotnar
Ein af mörgum fallegum gönguleiðum á svæðinu.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°41.9304 W020°52.2730
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
3 - 4 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Gras
- Möl
- Blandað yfirborð
- Hraun
Hindranir
- Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
- Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Leiðin er á hluta til á þjóðveg og þarf því að ganga/hjóla í vegkanti.
Hættur
- Hálka - Hál og sleip leið
- Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
- Landvarsla
Þjónustusvæði er á Húsafelli; Hótel Húsafell, Húsafell Bistro og þjónustuskáli.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleið Húsafell-Kaldárbotnar geymir stórfenglegt útsýni yfir Langjökul og Strút, á meðan áin Geitá liggur þétt við leiðina. Gengið er meðfram þjóðvegi nr. 518, inn Kaldadalsveg, inn í Húsafellsskóg og til baka.