Kópavogshringur 11 km
11 km hringur um Kópavog þar sem meðal annars er farið meðfram Kársnesinu og Fossvoginum
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
Upphafspunktur
Fossvogur
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Bundið slitlag
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Við leiðina er hægt að sækja þjónustu í kaffihús, verslanir og sundlaug.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hjólaferðin hefst í Fossvogi og liggur leiðin meðfram hjólastígnum sem býður upp á góða aðstöðu fyrir hjólreiðafólk, Gæta þarf að gangandi vegfarendum sem einnig nota stíginn. Þegar komið er að Víkingssvæðinu er beygt til hægri og hjólað í átt að neðsta hluta Smiðjuvegar. Þar tekur við stígur sem liggur fyrir ofan Tengi og fylgir meðfram Reykjanesbrautinni.
Eftir að hafa farið í gegnum tvenn undirgöng kemur maður að Dalveginum, þar sem leiðin heldur áfram. Í Kópavogsdalnum þarf að sýna sérstaka varúð gagnvart gangandi vegfarendum, en nokkrar leiðir eru í boði til að komast að undirgöngunum undir Hafnarfjarðarveginn. Þegar þeim er lokið, liggur leiðin í átt að Kársnesinu.
Á Kársnesinu er farið hring meðfram sjónum, sem býður upp á fallegt útsýni, en sérstaka aðgát þarf að hafa þegar farið er yfir Vesturvör. Þar er leiðin komin að Kársnesstígnum að norðan og í áttina að Fossvoginu, þar sem farið er yfir göngubrúnna sem liggur yfir Kringlumýrarbraut. Sem markar lok hjólaferðarinnar.