Öskjuhlíð
Þessi göngu- eða hlaupaleið um Öskjuhlíðina er 6,7 km hringur sem kallast Bakgarðshringurinn og hefst við Mjölnisheimilið. Farið er um skemmtilega stíga Öskjuhlíðarinnar og göngustíga meðfram henni og Nauthólsvík.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
64.13108, -21.92419 Mjölnir
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Salerni er að finna í Perlunni og Nauthólsvík
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Öskjuhlíð er einstakt útivistarsvæði í nágrenni Miðborgarinnar með fjölbreyttri náttúru og áhugaverðum söguminjum. Um Öskjuhlíðina liggja fjölmargir stígar sem skemmtilegt er að ganga um. Þessi göngu- eða hlaupaleið um Öskjuhlíðina er 6,7 km hringur sem kallast Bakgarðshringurinn og hefst við Mjölnisheimilið og farið er um skemmtilega stíga í Öskjuhlíðarinnar og göngustíga meðfram henni og Nauthólsvík.
Öskjuhlíðin sjálf er áhugavert útivistarsvæði með fjölbreytilegu náttúrufari, merkilegum jarðminjum, einni þéttustu skógrækt í Reykjavík og einstökum mannvistarminjum frá stríðsárunum. Öskjuhlíðin er afar vinsælt útivistarsvæði sökum nálægðar sinnar við miðbæ Reykjavíkur, háskólasvæðin í Vatnsmýrinni, útivistarsvæðin í Nauthólsvík og Fossvogi og fjölmenn hverfi eins og Bústaðahverfið og Hlíðar.