Ferðaþjónusta og frambjóðendur
16.10.2017
Fundurinn fer fram í Reykjavík miðvikudaginn 18. október kl. 8.30 – 10 í Kaldalóni í Hörpu. Heitt verður á könnunni frá kl. 8.00.
Tilefnið er að ræða stöðu ferðaþjónustunnar og þau tækifæri og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þeirri vaxandi atvinnugrein sem ferðaþjónustan er.
- Hver er stefna stjórnmálaflokkanna þegar kemur að ferðaþjónustu?
- Hvernig sjá frambjóðendur fyrir sér að festa ferðaþjónustuna í sessi til langrar framtíðar?
Frambjóðendur sem mæta á fundinn:
- Helga Vala Helgadóttir, Samfylkingu
- Helgi Hrafn Gunnarsson, forystumaður Pírata
- Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
- Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna
- Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins
- Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Sjálfstæðisflokki
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á www.saf.is
Það er afar mikilvægt að við sem lifum og hrærumst í ferðaþjónustunni nýtum tækifærið og mætum á fundinn!
Skráðu þig á fundinn HÉR.