Kynningarfundir um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
13.10.2017
Ferðamálastofa og sambönd sveitarfélaga á viðkomandi svæðum standa sameiginlega að kynningarfundum um sjóðinn. Fundað verður á Vestfjörðum og Norðvesturlandi þriðjudaginn 17. október n.k.
Á Vestfjörðum verður fundur á Ísafirði í fundarsal Þróunarsetursins, Árnagötu 2-4, kl. 13:00-14:30.
Á Norðvesturlandi verða tveir fundir, á Hótel Laugarbakka kl. 10:30 - 12:00 og á Hótel Varmahlíð kl. 14:00 - 15:30.
Starfsmenn Ferðamálastofu munu m.a. fara yfir:
- Breytingar á sjóðnum vegna breyttra laga og reglugerðar.
- Hverskonar verkefni eru styrkhæf og hver ekki.
- Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
- Umsóknarferlið og umsóknareyðublað.
- Hvernig er sótt um styrki úr sjóðnum?
Einkaaðilar, starfsmenn sveitarfélaga og sveitarstjórnarfólk er sérstaklega hvatt til þess að mæta.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og yfirstandandi umsóknarferli má nálgast hér.