91.000 ferðamenn í maí
Um 91 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í maí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 24.300 fleiri en í maí á síðasta ári. Aukningin nemur 36,4% milli ára.
Aukning hefur verið milli ára alla mánuði frá áramótum eða 34,5% í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í mars og 20,9% í apríl.
Þriðjungur frá Bandaríkjunum og Bretlandi
Tæplega þrír af hverjum fjórum ferðamönnum í maí árið 2015 voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 22,3% af heildarfjölda en næstir komu Bretar en þeir mældust 11,8% af heildarfjölda. Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar (7,4%), Norðmenn (6,5%), Svíar (5,7%), Frakkar (5,1%), Kanadamenn (4,9%), Danir (4,4%), Hollendingar (2,8%) og Pólverjar (2,7%).
Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Þjóðverjum og Kínverjum mest milli ára í maí en 8.772 fleiri Bandaríkjamenn komu í maí í ár en í fyrra, 2.437 fleiri Bretar, 1.949 fleiri Þjóðverjar og 1.048 fleiri Kínverjar. Þessar fjórar þjóðir báru uppi um 58% aukningu ferðamanna í maí.
Þróun á tímabilinu 2002-2015
Ferðamönnum í maí hefur fjölgað jafnt og þétt frá því Ferðamálastofa hóf talningar á Keflavíkurflugvelli árið 2002, með örfáum undantekningum. Heildarfjöldi ferðamanna í maímánuði hefur nærri fjórfaldast frá árinu 2002 og munar þá mestu um aukningu N-Ameríkana sem hafa meira en fimmfaldast og þeirra sem flokkast undir annað sem hafa nífaldast. Ferðamenn frá Mið- og S-Evrópu hafa á sama tíma nærri fjórfaldast, Bretar nærri þrefaldast og Norðurlandabúar ríflega tvöfaldast en hlutdeild þeirra síðastnefndu í maímánuði hefur minnkað með árunum.
Um 379 þúsund ferðamenn frá áramótum
Það sem af er ári hafa 379.700 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 88.550 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 30,4% aukningu milli ára. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum; Mið- og S-Evrópubúum hefur fjölgað um 36,6%, N-Ameríkönum um 35,6%, Bretum um 28,8%, Norðurlandabúum um 8,3% og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 42,7%.
Ferðir Íslendinga utan
Um 41 þúsund Íslendingar fóru utan í maí síðastliðnum eða um 4.500 fleiri en í maí árið 2014.
Nánari upplýsingar
Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.