Áframhaldandi fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll í febrúar
02.03.2007
Flugstöð
Rúmlega 103 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í nýliðnum febrúarmánuði, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta er tæplega 11% fjölgun farþega á milli ára, það er miðað við febrúar í fyrra.
Frááramótum hefur farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgað um tæp 10% eða um 18.900 farþega.
Farþegar á leið frá landinu voru 41.389 í febrúar síðastliðnum, fjölgaði um 11% á milli ára. Á leið til landsins voru 41.022 farþegar og fjölgaði þeim um 12,5% miðað við febrúar í fyrra. Áfram- og skiptifarþegar (transit) voru tæplega 11 þúsund og fjölgar aðeins. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.
Febr. 07. | YTD | Febr.06. | YTD | Mán. % breyting | YTD % Breyting | |
Héðan: | 45.947 | 93.497 |
41.389 |
84.140 | 11,01% | 11,12% |
Hingað: | 46.151 | 90.312 |
41.022 |
79.280 | 12,50% | 13,92% |
Áfram: | 3.642 | 6.156 |
729 |
2.204 | 399,59% | 179,31% |
Skipti. | 7.279 | 18.016 |
9.828 |
23.495 | -25,94% | -23,32% |
103.019 | 207.981 | 92.968 | 189.119 | 10,81% | 9,97% |