Ferðaþjónusta í tölum - október 2020
Ferðaþjónusta í tölum - október 2020 kom út í dag. Um að ræða mánaðarlega útgáfu hjá Ferðamálastofu, stutta samantekt með nýjustu talnaupplýsingum sem Ferðamálastofa safnar um ferðamenn og ferðaþjónustu ásamt talnagögnum frá Hagstofu Íslands. Áhersla er lögð á að skoða töluleg gögn ár aftur í tímann og þær breytingar sem hafa orðið.
Í þessari útgáfu er m.a. að finna samantekt um:
- fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll
- gistinætur
- herbergjanýtingu á hótelum
- tilgang Íslandsferðar, dvalarlengd og NPS skor
Ferðamenn undir milljónina
Meðal áhugaveðrar niðurstaðna í þessari útgáfu má nefna að nú gerist það í fyrsta sinn í langan tíma að fjöldi ferðamanna til landsins á 12 mánaða tímabili fer undir 1 milljón, samkvæmt brottfarartalningum á Keflavíkurflugvelli. Síðast gerðist það á árinu 2014.
Sem fyrr segir verður samantektin uppfærð mánaðarlega og er þetta er liður í aukinni áherslu Ferðamálastofu á rannsóknir, söfnun og miðlun talnaupplýsinga.
Allar ábendingar um efni og efnistök eru vel þegnar og sendast á oddny@ferdamalastofa.is
-
Ferðaþjónusta í tölum - október 2020