Fosshótel Húsavík komið í Vakann
17.08.2018
![Erla Torfadóttir og Eyrún Torfadóttir með viðurkenningu Vakans.](/static/news/vakinn-husavik3.jpg)
Erla Torfadóttir og Eyrún Torfadóttir með viðurkenningu Vakans.
Fosshótel Húsavík hefur bæst í hóp vaskra Vakafyrirtækja og flaggar með stolti þremur stjörnum superior og brons merki í umhverfishlutanum.
Þar með eru 8 hótel undir hatti Íslandshótela komin með stjörnuflokkun Vakans. Auk þess eru veitingastaðir á vegum keðjunnar Haust, Bjórgarðurinn og Grand Restaurant allir með gæðaviðurkenningu Vakans.