Staða mála og horfur – ferðaþjónustan spurð
Á dögunum voru kynntar niðurstöður úr viðhorfskönnun meðal aðila í ferðaþjónusturekstri sem Deloitte gerði fyrir markaðsstofur landshlutanna og Ferðamálastofu. Verkefnið er liður í að koma á væntingavísi innan ferðaþjónustunnar.
Tilgangur og markmið
Markmiðið er að könnun sem þessi sé gerð árlega í því skyni að draga fram álit ferðaþjónustuaðila á stöðu mála og horfum í greininni. Það er álit umsjónaraðila könnunarinnar að það sé lykilatriði í því að öll ákvarðanataka sem varðar greinina í heild verði upplýstari og markvissari.
Uppbygging könnunarinnar
Viðhorfskönnuninni er skipt í 5 meginkafla eins og sjá má nánar á myndinni hér að neðan. Svörin eru svo brotin niður á alla landshluta, þ.e.: Austurland, Norðurland, Reykjanes, Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Vestfirði og Vesturland.
Meginniðurstöður
Ýmislegt áhugavert má lesa út úr svörum en af niðurstöðum má merkja að blikur geti verið á lofti.
- Ferðaþjónustuaðilar í öllum landshlutum nema Vesturlandi telja vaxtartækifærin verri nú en fyrir ári síðan.
- Helstu áhættuþættir á næstunni varðandi reksturinn snúa að gengisþróun og verðlagi.
- Samhljómur virðist vera í öllum landshlutum um að ekki séu í kortunum vísbendingar um verulega fjölgun starfa eða fjárfestingar í greininni.
- Almennt telja ferðaþjónustuaðilar að hið opinbera geti gert betur, en áherslur eru ólíkar eftir landshlutum (skipulag / dreifing ferðamanna).
- Engu að síður gera ferðaþjónustuaðilar í öllum landshlutum ráð fyrir aukningu ferðamanna í sínum landshlutum.
- Þá eru ferðaþjónustuaðilar í öllum landshlutum sammála.
um að ferðaþjónusta hafi margvísleg jákvæð áhrif á þeirra nærsvæði.
Samantekt með meginniðurstöðum
Um könnunina
Forsagan er sú að á árinu 2016 voru gerðar tvær kannanir meðal ferðaþjónustufyrirtækja, annars vegar á vegum Ferðamálastofu og hins vegar markaðsstofanna og Deloitte. Því þótti einboðið að sameina nú kraftana í einni könnun. Viðhorfskönnunin var framkvæmd í maí-júní. Um var að ræða vefkönnun sem send var á 2.886 aðila en 611 aðilar svöruðu eða um 23% eftir að búið var að leiðrétta fyrir óvirkum netföngum.