Tækifæri ferðaþjónustunnar í stafrænum heimi – Morgunfundur 2. maí
Ferðamálastofa í samstarfi við Íslenska ferðaklasann býður til morgunfundar um stöðu ferðaþjónustunnar í stafrænum heimi. Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 2. maí kl. 8:30-11:30.
Með fundinum vilja Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn leggja sitt að mörkum til að vekja umræðu og gera íslenska ferðaþjónustu meðvitaða um þær öru tæknibreytingar sem eru að verða í heimi ferðaþjónustunnar. Þar koma m.a. við sögu síaukin samþætting snjalltækja við daglegt líf okkar, kröfur um hraðari þjónustu og betra aðgengi að upplýsingum.
Þekktur alþjóðlegur fyrirlesari
Meðal fyrirlesara á fundinum er Bandaríkjamaðurinn Doug Lansky. Hann er vinsæll höfundur ferðabóka, ásamt því að vera eftirsóttur alþjóðlegur fyrirlesari og ráðgjafi í ferðamálum. Doug hefur ferðast um heiminn mörg undanfarin ár og greint frá upplifunum sínum með gamansömum hætti í blaða- og tímaritsgreinum undir nafninu Vagabond, sem birst hafa í ýmsum blöðum sem margir kannast eflaust við.
Dagskrá:
- Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, setur málþingið
- Fjórða iðnbyltingin og ferðaþjónusta
Bárður Örn Gunnarsson, eigandi Svartatinds
- Verðmætir ferðamenn eru úti að aka
Soffía Krístin Þórðardóttir, forstöðumaður Ferðalausna Origo - Arctic Adventures: Rekstur í stafrænu umhverfi
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Arctic Adventures - Smarter Roadmap to Manage Tourism
Doug Lansky, höfundur ferðabóka, alþjóðlegur fyrirlesari og ráðgjafi í ferðamálum
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, stýrir fundinum.
Skráning
Fullbókað er á fundinn en hann verður sendur út beint á Netinu. Verður hægt að fylgajast með á www.visir.is og einnig hér á vefnum.
Kynningar fyrirtækja og frumkvöðla
Sérstök athygli er vakin á því að fyrirtækjum og frumkvöðlum á sviði tæknilausna í ferðaþjónustu stendur til boða að kynna starfsemi sína á meðan á fundinum stendur í fordyri salarins.
Áhugasamir aðilar eru beðnir að hafa samband fyrir lok dags 26. apríl næstkomandi með því að senda póst á netfangið stafraennheimur@ferdamalastofa.is fyrir nánari upplýsingar um skipulag og kostnað. Athugið að takmarkað pláss er í boði og því ekki víst að allir komist að sem vilja.