Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi Safaris ehf. fellt úr gildi

24.08.2023

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Safaris ehf., kt. 470901-3060, þar sem leyfishafi uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu leyfis.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Frestur til að senda kröfu í tryggingarfé er til og með 23. október 2023. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Hægt er að senda kröfur á netfangið krofur@ferdamalastofa.is. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.