Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi Wanderlust – Hálendisferðir ehf. fellt úr gildi

13.11.2023

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Wanderlust - Hálendisferðir ehf. kt. 680813-1080 frá og með 8. nóvember 2023 þar sem leyfishafi uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu leyfis.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Frestur til að senda kröfu í tryggingarfé er til og með 13. janúar 2024. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Hægt er að senda kröfur á netfangið krofur@ferdamalastofa.is. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.