Dagsetning: Miðvikudagur 6. maí 2020Tími: 10:00-11:00Staðsetning: Fjarnámskeið
Samkvæmt lögum ber hverjum þeim sem hyggst framkvæma skipulagðar ferðir á íslensku yfirráðasvæði að hafa öryggisáætlanir fyrir ferðir sínar.
Ferðamálastofa býður upp á hagnýtt námskeið þar sem ferið verður yfir það hvað felst í öryggisáætlun og þá þætti sem þurfa að vera til staðar svo að öryggisáætlun teljist fullnægjandi. Það er áhættumat, verklagsreglur, viðbragðsáætlanir og atvikaskýrslu. Þátttakendum verður einnig leiðbeint um hvar þeir geta fundið leiðbeiningar, eyðublöð og dæmi. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Að námskeiðinu loknu ættu þátttakendur að eiga auðveldara með að hefjast handa við gerð öryggisáætlana fyrir fyrirtækið sitt. Gert er ráð fyrir því að námskeiðið taki um klukkustund en það fer fram í gegnum fjarfundabúnaðinn GoToMeeting og verður hlekkur sendur á skráða þátttakendur.
Skráning: