Áfangastaðaáætlun Vestfjarða birt
Markaðsstofa Vestfjarða hefur birt Áfangastaðaáætlun Vestfjarða sem unnin var í samvinnu við Ferðamálastofu. Markmiðið með áætluninni er að stuðla að ábyrgri ferðaþjónustu sem skilar sem mestum hagnaði til samfélaga, um leið og mögulegum neikvæðum áhrifum er haldið í lágmarki. Hér má nálgast samantekt á helstu atriðum sem koma fram í áætluninni.
Heildstæð áætlun
Áfangastaðaáætlun Vestfjarða er heildstæð áætlun sem hefur ferðaþjónustu sem meginpunkt. Í áætluninni er horft á ferðaþjónustu út frá víðu sjónarhorni og tekið tillit til margra ólíkra aðila sem eiga hagsmuna að gæta í þróun áfangastaðairns. Áætlunin tekur tillit til gesta, íbúa, fyrirtækja og umhverfis og reynir að skapa jafnvægi. Hún gerir íbúum kleift að ákveða hvernig þeir vilja að ferðaþjónusta þróist með tilliti til áhrifa á efnahag og samfélag þeirra og hvaða skref skuli taka í átt að því marki.
Aðgerðum forgangsraðað
Í Áfangastaðaáætlun Vestfjarða var unnin greining á stöðu ferðaþjónustunnar á svæðinu þar sem farið er yfir helstu þætti sem tengjast henni á beinan eða óbeinan hátt. Út frá greiningunni varr farið í að móta framtíðarsýn og markmið, síðan var unnin aðgerðaáætlun út frá þeim. Í aðgerðaáætluninni var sett fram forgangsröðun verkefna, en farið var þá leið að fá aðstoð allra þeirra sem vildu leggja hönd á plóg við forgangsröðunina. Haldnir voru opnir fundir á svæðunum og sveitarfélögin fengin til að setja fram sína skoðun og forgangsröðun.
Verkefnisstjóri Áfangastaðaáætlunar Vestfjarða er Magnea Garðarsdóttir. Ef einhverjir vilja koma á framfæri spurningum eða athugasemdum er varða Áfangastaðaáætlun Vestfjarða þá er vinsamlegast vent á að hafa samband við Magenu á magnea@vestfirdir.is.
Ferðamálastofa heldur kynningarfund um áfangastaðaáætlanir á Hótel Sögu, Reykjavík 15. nóvember næstkomandi kl. 13-16. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis, en við biðjum þá sem ætla að mæta um að skrá sig hér. Fundinum verður einnig streymt á netinu.