Styrkir vegna ferðamálasamstarfs Íslands, Grænlands og Færeyja
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA, ferðamálasamstarfi Íslands, Grænlands og færeyja. Lokafrestur til að skila umsókn er 21. ágúst 2020.
Styrkir til tvenns konar verkefna
NATA auglýsir að jafnaði eftir styrkjum tvisvar á ári, í byrjun árs og í ágúst. Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna:
- Þróunar- og markaðsverkefna í ferðaþjónustu
- Ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna
Vakin er athygli á að stjórn NATA leggur sérstaka áherslu á umsóknir sem tengjast sjálfbærri ferðamennsku.
Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.
- Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna.
- Til nýsköpunar- og vöruþróunar.
- Til þekkingarheimsókna og miðlunar gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila.
- Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar.
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
- Verkefnishugmyndar og gæða umsóknarinnar.Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
- Nýnæmis og nýsköpunargildis verkefnisins
- Markaðstengingar
- Kostnaðaráætlunar og annarrar fjármögnunar
- Samfélagslegs gildis
Styrkir vegna kynnis- og námsferða
Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:
- Skóla
- Íþróttahópa
- Tónlistarhópa
- Annars menningarsamstarfs
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:
- Verkefnishugmynd
- Gæði umsóknar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
- Gagnkvæmni og tengslamyndun
- Kostnaðaráætlun, fjármögnun
Hvar er sótt um?
Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.
Nánari leiðbeiningar um umsóknir á vef NATA
Skilafrestur
Lokafrestur til að skila umsókn vegna næstu úthlutunar er 21. ágúst 2020 (á miðnætti GMT). Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 15. október 2020. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 15. október eru ekki styrkhæf og sama á við um ferðir sem lýkur fyrir þann tíma.
Næsti umsóknarfrestur
Um er að seinni úthlutun af tveimur á árinu 2020. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar 2021 verði í febrúar 2021 en það verður auglýst sérstaklega síðar.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Barbara Vang – nata@vinnuframi.fo