Skútustaðagígar: Tjarnahringur Gönguleið
Auðveld gönguleið umhverfis Stakhólstjörn á Skútustöðum. Leiðin liggur meðfram formfögrum gervigígum. Á sumrin er þar ríkugt fuglalíf og fagurt útsýni yfir Mývatn.
Skútustaðir voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1973.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Þingeyjarsveit
Upphafspunktur
Bílastæði við Sel Hótel Mývatn
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Möl
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Landvarsla
Gestastofan Gígur á Skútustöðum er opin allan ársins hring. Þar veita landverðir og þjónustufulltrúar gestum fræðslu og upplýsingar um náttúrufar, gönguleiðir, gistingu og afþreyingu í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar um opnunartíma: https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/svaedi/askja/gigur
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma