Fara í efni

Beruvík gönguleið

Á göngu um Beruvík er farið á milli bæjarrústa en sjá má m.a. fjárbað þar sem sauðfé var baðað vegna fjárkláða, Nýjabúð rústir og ýmsar tóftir á meðan Snæfellsjökullinn gnæfir yfir gesti.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Snæfellsnes
Upphafspunktur
N64°48.7933 W023°57.6929
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Hraun
  • Blandað yfirborð
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Leið opin 12 mánuði ársins en bent er á að leið er ófær yfir mars og apríl mánuði.
Upphaf gönguleiðar er við bílastæði hjá Beruvík. Gönguleið liggur um rústir bæja sem voru í Beruvík og er leiðin stikuð. Sagt er að kona að nafni Bera hafi búið í Beruvík. Í Beruvík voru tvær jarðir, Garðar og Hella. Nýjabúð, Bakkabúð og Helludalur voru hjáleigur. Landið var erfitt búskapar því lítil tún og hraun gerðu bændum erfitt fyrir. Þó var skjólsamt og góð beit árið um kring. Bændur sóttu sjóinn frá Beruvík og nýttu reka. Byggð lagðist af um miðja 20 öld. Á göngu um Beruvík er farið á milli bæjarrústa en sjá má m.a. fjárbað þar sem sauðfé var baðað vegna fjárkláða, Nýjabúð rústir og ýmsar tóftir á meðan Snæfellsjökullinn gnæfir yfir gesti.