Garðabæjarhringur Gönguleið
Leiðin hefst við Vídalínskirkju og liggur fram hjá sögulegum stöðum eins og Hofsstöðum og Vífilsstöðum áður en haldið er áfram að Vífilsstaðavatni og Urriðaholti. Hún fer síðan yfir Garðahraun og í gegnum íbúðahverfi áður en komið er aftur að upphafsstað.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Við Vídalínskirkju
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Leiðin hefst við Vídalínskirkju, en tilvalið er að byrja eða enda gönguna á því að skoða Minjagarðinn að Hofsstöðum. Þar var grafið niður á einn stærsta landnámsskála sem fundist hefur á Íslandi. Gengið er eftir íbúðargötum og Holtstúni þar sem Sankti Jósefssystur bjuggu allt fram til ársins 1998. Á leiðinni upp að Vífilsstaðavatni má sjá Vífilsstaði þar sem starfrækt var berklahæli frá árinu 1910 uns berklum var að mestu útrýmt á Íslandi. Næst er gengið í áttina að Vífilsstaðahlíð og þaðan í áttina að Urriðaholti. Ganga þarf stuttan spöl í kantinum á Flóttamannaveginum áður en komið er inn á stíginn við Urriðaholt en hús Náttúrufræðistofnunar blasir þar við á leiðinni. Gengið er yfir brúna sem liggur yfir Hafnarfjarðarveg og að stíg sem þverar úfið Garðahraunið. Leiðin liggur svo í gegnum íbúðahverfið í Flötum og aftur að Vídalínskirkju þar sem gangan hófst.