Guðmundarlundur og Elliðavatn Gönguleið
Þessi sem gönguhringur hefst við Guðmundarlund er umhverfis hina óbyggðu Vatnsendahlíð. Farið er um fjölbreytta slóða og geta sumir þeirra orðið blautir í vætutíð en einnig er farið um malarvegi og nýlega malbikaða stíga.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
Upphafspunktur
Guðmundarlundur
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Blandað yfirborð
- Bundið slitlag
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Á sumrin eru salerni opin í Guðmundarlundi
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Genginn er hringur meðfram Elliðavatni og um Vatnsendahlíð. Gangan hefst við Guðmundarlund sunnan megin í Vatnsendahlíð og er sama í hvora áttina er farið. Á sumrin er fólk sérstaklega hvatt til þess að veita fuglunum athygli enda liggur leiðin um nokkur vistkerfi. Ýmist er gengið í félagi við spörfugla í skógi vöxnum Guðmundarlundi og í kjarrlendinu í kring eða að leiðin liggur um ríki mófugla í Vatnsendahlíð. Að auki má sjá til sundfugla á Elliðavatni. Fjallasýn er til allra átta í góðu skyggni og forvitnilegt er að virða fyrir sér misgengisdalina og ímynda sér Elliðavatn eins og það var áður en það varð að miðlunarlóni fyrir um einni öld og stækkaði þá umtalsvert. Leiðin er fær allt árið en það getur verið skynsamlegt að leggja bílum við íþróttahúsið Kórinn þegar snjóþungt er á veturna. Farið er um fjölbreytta slóða og geta sumir þeirra orðið blautir í vætutíð en einnig eru gengnir malarvegir og nýlega malbikaðir stígar. Þarna eru göngustígar og reiðstígar þvers og kruss. Göngu- og hjólafólk ætti að hafa í huga að hross geta verið hvumpin og geta hræðst ýmislegt, hvell hljóð eða snöggar hreyfingar. Það er því góð regla að nema staðar þegar ríðandi fólki er mætt, víkja til hliðar og hinkra við á meðan riðið er fram hjá.