Fara í efni

Heiðmörk 3,3 km græn leið Blönduð leið (ganga og hjól)

Skógarhringurinn í Heiðmörk er ákaflega skemmtilegur og fjölskylduvæn gönguleið. Hringurinn er 3,3 km og er merktur með grænum stikum.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
64.07415, -21.74441 Borgarstjóraplan Heiðmörk
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Skógarhringurinn í Heiðmörk er ákaflega skemmtilegur og fjölskylduvænn gönguleið. Leiðin er vel merkt grænum stikum og er hún 3,3 km. Á leiðinni er Furulundur sem er fjölskyldulundur búinn leiktækjum, blakvelli og grillaðstöðu. Inn af Furulundi er Dropinn, áningarstaður með grilli, borðum og bekkjum. Grenilundur er annar fjölskyldulundur sem er á þessari leið en þar er grillaðstaða og leik- og klifurtæki að finna. Tilvalið er því að ganga þennan stutta hring og taka með sér nesti og gera sér glaðan dag í skóginum.