Vatnahringurinn í Heiðmörk Hjólaleið
Falleg hjólaleið í Heiðmörk merkt með bláum stikum, sem liggur fram hjá vötnum og fræðsluskiltum um náttúru og sögu svæðisins.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Bílastæðið við Helluvatn eða Borgarstjóraplan í Heiðmörk
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Heiðmörk er sannkölluð paradís hjólreiðafólks. Vatnahringurinn er 7,5 km löng leið í Heiðmörk sem er merkt með bláum stikum. Á bíl er ekið inn í Heiðmörk eftir Rauðhólavegi frá Suðurlandsvegi. Hægt er að leggja á bílastæðinu við Helluvatn eða við Borgarstjóraplan. Fleiri bílastæði er einnig að finna í Heiðmörk. Á leiðinni er hjólað fram með Elliðavatni og fleiri minni vötnum eins Helluvatni, Hraunhúsatjörn og Myllulækjatjörn. Fræðsluskiltum með ýmis konar fróðleik um fugla, plöntur, tré, jarðfræði og sögu svæðisins hefur verið komið fyrir af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Stígurinn er lagður fyrir gangandi vegfarendur sem njóta þar forgangs. Hjólreiðafólk má nota stígana en ber að gæta varúðar og taka tillit til þeirra sem fara um á tveimur jafnfljótum.
Heiðmörk er í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur og nánari upplýsingar má finna á heidmork.is.