Fara í efni

Helgafell gönguleið

Mikil saga fylgir svæðinu og stórfenglegt útsýni á toppi Helgafells, þar sem sést yfir Breiðarfjörð og fjallagarð Snæfellsnes.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Snæfellsnes
Upphafspunktur
N65°02.5055 W022°43.9716
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
  • Steinlögn
  • Möl
  • Trjákurl
  • Stórgrýtt
  • Blandað yfirborð
Hættur
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Ferðaleið er opin nema þegar þegar tímabundnarlokanir eiga sér stað vegna ófærðar yfir vetrarmánuði.
Helgafell er klettafell úr blágrýti sem staðsett er rétt fyrir utan Stykkishólm. Við rætur fellsins er að finna bílastæði ásamt skiltum tengdum sögu staðarins og er öll aðkoma til fyrirmyndar. Við upphaf göngu er gengið í gegnum hlið en við tekur göngustígur sem leiðir göngufólk upp að útsýnisskífu og hlaðna tóft sem er að finna á toppi Helgafells. Helgafell í Helgafellssveit er fornfræg jörð en hún kemur við sögu í íslendingasögunum og eru sumar hverjar taldar hafa verið skrifaðar á Helgafelli. Mikil saga fylgir því svæðinu og stórfenglegt útsýni á toppi Helgafells, þar sem sést yfir Breiðarfjörð og fjallagarð Snæfellsnes. Gömul þjóðtrú segir að þau sem ganga í fyrsta sinn á Helgafell hafi kost á því að bera upp þrjár óskir þegar upp á fellið er komið. Skilyrðin eru að gengið sé í þögn upp á fellið og ekki sé litið til baka. Þegar upp á fellið er komið er horft í austurátt og þrjár óskir bornar fram í huganum og engum sagðar.