Hjallahringur í Heiðmörk Gönguleið
Hjallahringurinn liggur um fjölbreytt landslag með hraunbreiðum og birkiskógum. Leiðin er vel merkt með hvítum stikum.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Þjóðhátíðarlundur eða Ullarplan í Heiðmörk
Merkingar
- Skilti við upphaf leiðar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hjallahringur er falleg 8 km gönguleið í Heiðmörk. Hægt að leggja af stað t.d. frá Þjóðhátíðarlundi eða frá Ullarplani við Heiðmerkurveg. Leiðin er vel merkt með hvítum stikum og liggur um fjölbreytt landslag með hraunbreiðum og birkiskógum. Frá hæsta hluta leiðarinnar er stórbrotið útsýni yfir Reykjavík, Bláfjöll og nærliggjandi svæði. Stígurinn getur verið blautur og viðkvæmur þegar frost er að fara úr jörðu. Á veturna er leiðin vinsæl meðal gönguskíðafólks. Heiðmörk er í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur sem eru frjáls félagasamtök. Nánari upplýsingar á heidmork.is.