Fara í efni

Hólmahringur í Elliðaárdal Gönguleið

Tilvalin fjölskylduganga um fallega Hólmann í Elliðaárdal.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Bílastæði í Elliðaárdal
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Skemmtilegur og stuttur hringur um Hólmann í Elliðaárdal sem er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna. Gengið er frá Elliðaárstöð og meðfram slóða sem liggur í gegnum skógræktina. Áður en komið er að Rafveituheimilinu er beygt til hægri yfir trébrú og stíg sem liggur til vinstri fylgt áfram að Kermóafossum. Gaman er að ganga niður að fossunum og njóta niðsins og umhverfisins. Göngunni er svo haldið áfram eftir stígnum í Hólmanum. Í nokkrum skógarrjóðrum á leiðinni má sjá hönnunarinnsetningar sem þar hefur verið komið fyrir og um að gera að fara örlítið af leið til þess að skoða þær. Leiðin endar svo aftur þar sem gangan hófst. Eftir gönguna er ekki úr vegi að skoða sig um á svæðinu við Elliðaárstöð þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár. Þar er meðal annars finna kaffihús og skemmtilegan leikvöll.