Mosfell Gönguleið
Leiðin upp á Mosfell er vel merkt og fjölskylduvæn gönguleið með fallegu útsýni yfir Esju og Mosfellsdal, áhugaverðum jarðfræðilegum einkennum og sögulegum tengslum við silfursjóð Egils Skallagrímssonar.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Við Mosfellskirkju
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Mosfell er lágreist fjall (280 m y.s.) í Mosfellsdal. Leiðin upp á Mosfell er tilvalin fyrir alla fjölskylduna þar sem genginn er hringur sem byrjar og endar við bílastæði Mosfellskirkju. Stígurinn upp á Mosfell er greinilegur og er leiðin einnig vel stikuð. Í upphafi er gengið áleiðis upp fjallið að kolli sem nefnist Diskur. Þaðan er svo haldið áfram upp aflíðandi brekku upp austurenda fjallsins. Þaðan er síðan gengið eftir nær sléttu landi vestur eftir fjallinu á hæsta punkt þess, en þaðan er fallegt útsýni yfir til Esju og yfir Mosfellsdalinn. Stikunum er svo fylgt til suðurs niður eftir fjallinu þar til komið er aftur að upphafi leiðarinnar. Frá því að Stardalsmegineldstöðin kulnaði fyrir um tveimur milljónum ára hafa roföflin grafið dali í svæðið sunnan Esju og myndað það landslag sem við sjáum nú. Berggrunnurinn er að mestu hraun sem runnu á hlýskeiði og í Mosfelli má sjá hraunlög sem hafa hlaðist upp á löngum tíma. Mosfellsheiði er dyngja og þaðan runnu hraun niður á láglendið í Mosfellssveit. Víða er jarðhiti í tengslum við virkar sprungur og misgengi sem teygja sig út frá gosbeltinu. Í Mosfellsdal eru þykk setlög sem benda til þess að þar hafi verið stöðuvatn. Egils saga greinir frá því að Egill Skallagrímsson hafi dvalið á Mosfelli á efri árum hjá Þórdísi bróðurdóttur sinni. Samkvæmt sögunni á hann að hafa falið silfursjóð sinn hér í nágrenninu.