Fara í efni

Neshringurinn Gönguleið

Neshringurinn er falleg gönguleið um Seltjarnarnes með stórbrotnu útsýni yfir ströndina, fallega viðkomustaði og möguleika á fótabaði í Kviku.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Seltjarnarnes
Upphafspunktur
Bílastæði við Gróttu
Erfiðleikastig
Aðgengi fyrir alla
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Fólk á öllum aldri gengur sér til heilsubótar um Seltjarnarnes og nýtur óviðjafnanlegs útsýnis og náttúrunnar. Þessi 5 km hringur liggur meðfram Nesinu og hefst við bílastæðið hjá Gróttu. Gengið er í suðurátt meðfram sjónum og áfram fram með Bakkatjörn. Rétt við golfvöllinn er sveigt til vinstri og inn á malbikaðan göngu- og hjólastíginn sem liggur með suðurströnd Nessins. Stígurinn er genginn austur og yfir Nesið, fram hjá sundlauginni og Eiðistorgi allt þar til komið er að norðurströndinni. Þar er sveigt til vinstri og gengið vestur á bóginn að bílastæðinu við Gróttu. Tilvalið er að koma við hjá listaverkinu Kviku eftir listakonuna Ólöfu Nordal sem stendur á Kisuklöppum við fjöruna rétt áður en komið er að Gróttu og dýfa tánum ofan í. Í laugina rennur forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en vatnið hefur einstaka efnasamsetningu og þykir hafa heilnæma eiginleika.