Vífilsstaðavatn Gönguleið
Stutt og skemmtileg gönguleið í kringum Vífilstaðavatn sem hentar vel flestum sem vilja njóta útiveru í náttúrunni.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Bílastæði við Vífilsstaðavatn
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Engin þjónusta
- Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hundar bannaðir á varptíma frá 15. apríl - 15. ágúst
Hundar bannaðir á varptíma frá 15. apríl - 15. ágúst
Umhverfis Vífilsstaðavatn liggur greiðfær stígur sem er um 2,6 km að lengd. Það tekur um 35 mín. að ganga kringum vatnið en um 15 mín. að skokka. Útivistarbekkir eru meðfram stígnum og tilvalið tylla sér þar á leiðinni og njóta náttúrunnar og fjölbreytts fuglalífs. Fræðsluskiltum hefur verið komið upp þar sem lesa má sér til um lífríki vatnsins, fugla og gróður svæðisins. Gamla bryggjan við vesturbakkann var lagfærð fyrir nokkrum árum til að auðvelda aðgengi fatlaðra. Umhverfi vatnsins er eftirsóknarvert til útivistar árið um kring. Frá vatninu er hægt að ganga upp að vörðunni Gunnhildi í Vífilsstaðahlíð þaðan sem er gott útsýni og hægt að glöggva sig á kennileitum af útsýnisskífu. Einnig er gönguslóði innan við vatnið upp í Grunnavatnaskarð. Vatnið og umhverfi þess var friðlýst árið 2007. Skrautfjöður friðlandsins er flórgoðinn. Gerð var tilraun að setja út hreiðurstæði fyrir goðana á vorin og hefur þeim fjölgað á vatninu með hverju ári í kjölfarið. Hundar eru bannaðir í friðlandinu um varptímann, frá 15. apríl til 15. ágúst. Veiðileyfi í vatninu er hægt að kaupa frá 1. apríl til 15. september.
Vífilsstaðavatn er í Heiðmörk. Heiðmörk er í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur sem eru frjáls félagasamtök. Nánari upplýsingar og kort sem sýna fleiri leiðir má finna á heidmork.is.