12% fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll í janúar
03.02.2006
Flugstöð
Rúmlega 96 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í janúarmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta er 12,4% fjölgun farþega á milli ára, það er miðað við janúar í fyrra.
Farþegar á leið frá landinu voru 42.751 í janúar síðastliðnum, fjölgaði um 14% á milli ára. Á leið til landsins voru 38.258 farþegar og fjölgaði þeim um 13,3% miðað við janúar í fyrra. Áfram- og skiptifarþegar (transit) voru rúmlega 15 þúsund og fækkar aðeins. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.
Jan. 06 | YTD | Jan.05 | YTD | Mán. % breyting |
YTD % breyting | |
Héðan: | 42.751 | 42.751 | 37.503 | 37.503 | 13,99% | 13,99% |
Hingað: | 38.258 | 38.258 | 31.028 | 31.028 | 23,30% | 23,30% |
Áfram: | 1.475 | 1.475 | 2.237 | 2.237 | -34,06% | -34,06% |
Skipti. | 13.667 | 13.667 | 14.765 | 14.768 | -7,44% | -7,46% |
96.151 | 96.151 | 85.533 | 85.536 | 12,41% | 12,41% |