13,5% fækkun í ágúst milli ára
Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 252 þúsund í ágústmánuði eða um 39 þúsund færri en í ágúst árið 2018. Þar munaði mest um fækkun Bandaríkjamanna, en brottförum þeirra fækkaði um tæp 35 þúsund frá því í ágúst 2018. Fækkun milli ára nemur 13,5%.
Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5%, um 23,6% í maí, 16,7% í júní og 17% í júlí
Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í ágúst eða 24,9% brottfara og fækkaði þeim um 35,6% milli ára.
Frá áramótum hefur um 1,4 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 13,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.
Fjölmennustu þjóðernin
Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í ágúst tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 21 þúsund talsins eða 2,6% færri en í ágúst árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Frakka, um 19 þúsund talsins og fjölgaði þeim um 5,9% milli ára.
Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Ítala (5,3% af heild), Spánverja (5,1% af heild), Kínverja (5,1% af heild), Breta (4,8% af heild), Kanadamanna (4,3% af heild), Pólverja (3,5% af heild) og Hollendinga (2,6% af heild).
Ferðir Íslendinga utan
Um 48 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst í ár eða 13,6% færri en í ágúst 2018. Frá áramótum hafa um 416 þúsund Íslendingar farið utan eða 6,6% færri en á sama tímabili í fyrra.