135.200 brottfarir erlendra farþega í desember
Brottfarir erlendra farþega* frá Íslandi voru 135.200 talsins í desember síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 10.500 fleiri en í desember á síðasta ári.
Aukningin nemur 8,4% milli ára sem er álíka mikil aukning og var í nóvember síðastliðnum. Samanborið við árið 2016 þá var fjölgunin á milli ára á bilinu 44,9% til 75,3% á tímabilinu janúar til apríl en 14,7% til 18,9% á tímabilinu maí til október.
Frá áramótum fóru um 2,2 milljónir erlendra farþega frá landinu sem er um 24,2% aukning frá 2016. Þess ber að geta að tölur ná yfir allar brottfarir frá landinu. Gera má ráð fyrir að frávik hvað varðar hlutdeild ferðamanna til landsins séu meiri í desember en aðra mánuði ársins vegna ferðalaga erlendra ríkisborgara búsettra hérlendis í tengslum við jólaleyfi.
Bandaríkjamenn og Bretar tæplega helmingur
Af einstaka þjóðernum voru brottfarir Breta flestar í desember í ár, um 33 þúsund talsins eða álíka margar og í desember 2016. Brottfarir Bandaríkjamanna komu þar á eftir, voru ríflega 26 þúsund talsins en þær voru 8,1% fleiri en í desember á síðasta ári. Brottfarir Breta og Bandaríkjamanna voru 44,2% af heild. Brottfarir Kínverja í desember í ár komu þar á eftir, um 10 þúsund talsins (7,5% af heild) og fjölgaði þeim um 7,8% milli ára. Þar á eftir fylgdu brottfarir Pólverja (5,2% af heild), Þjóðverja (3,0% af heild), Frakka (2,8% af heild), Kanadamanna (2,5% af heild), Ástrala og Ný-Sjálendinga (2,4% af heild), Spánverja (2,4% af heild), Eista, Letta og Litháa (2,1% af heild), Dana (1,7% af heild) og Hollendinga (1,6% af heild).
Tæp þreföldun á fimm ára tímabili
Fjöldi brottfara erlendra farþega hefur nærri þrefaldast á tímabilinu janúar til nóvember á fimm ára tímabili, þ.e. frá árinu 2013. Þannig hefur fjöldi Norður Ameríkana næstum fimmfaldast, Mið- og Suður Evrópubúa meira en tvöfaldast, fjöldi Breta meira en tvöfaldast og fjöldi þeirra sem koma frá löndum sem flokkast undir annað nærri fjórfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í mun minna mæli á tímabilinu 2013-2017 eða um fjórðung.
Breytt samsetning
Hlutfallsleg samsetning farþega hefur breyst nokkuð frá árinu 2013 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar um brottfarir á árunum 2013-2017. Norður Ameríkanar voru 30,9% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 2013. Hlutdeild Breta var 14,7% árið 2017 en var á bilinu 17,6%-19,1% á árunum 2013-2016. Norðurlandabúar voru 8,3% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur minnkað jafnt og þétt síðustu ár. Hlutdeild Mið-og Suður Evrópubúa hefur jafnframt minnkað frá 2013 til 2017 en hefur að sama skapi hækkað hjá þeim sem falla undir ,,annað“.
14 þjóðerni bætast við
Þjóðernum í brottfarartalningum var fjölgað úr 18 í 32 í júní síðastliðnum. Þjóðernin sem bættust við eru Austurríkismenn, Ástralir, Belgar, Hong Kong búar, Indverjar, Ísraelar, Írar, Singapúr-búar, S-Kóreumenn og Tævanar. Ástralir og Ný-Sjálendingar eru nú ennfremur taldir sérstaklega og þá undir sama hatti og hið sama má segja um Eista, Letta og Litháa. Niðurstöður gefa færi á að setja niðurstöður fram eftir fleiri markaðssvæðum en verið hefur.
Ferðir Íslendinga utan
Um 45 þúsund Íslendingar fóru utan í desember í ár eða 9,8% fleiri en í desember 2016.Utanferðir Íslendinga voru um 618 þúsund talsins á árinu 2017eða 15,9% fleiri en á sama tímabili árið 2016.
Nánari upplýsingar*
Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og vert er að hafa í huga að með þessari aðferð ná talningarnar yfir alla sem fara í gegnum öryggisleit. Tölurnar ber því að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Þó ber að ítreka að flestir skiptifarþegar eru ekki inn í þessum tölum. Með því að viðhafa sömu aðferðafræði í gegnum tíðina hafa fengist dýrmætar upplýsingar um þjóðernasamsetningu ferðamanna og fjölda þeirra, sem samanburðarhæfar eru milli ára. Þannig má greina þróunina með tiltölulega litlum kostnaði og án teljandi óþæginda fyrir starfsemi Keflavíkurflugvallar.
Niðurstöður úr könnun sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega tvívegis á árinu, annars vegar yfir hásumarið (júlí-ágúst) og hins vegar í nóvember gefa til kynna að 86,3% brottfararfarþega yfir hásumarið og 92,1% í nóvember voru að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi. Þeir sem voru erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma reyndust 2,7% brottfara yfir hásumarið og 4,7% í nóvember. Þeir sem millilentu án þess að fara út af flugvellinum reyndust 4,8% yfir hásumarið og 1,7% í nóvember en þeir sem millilentu og nýttu tækifærið til að fara út af flugvellinum og heimsækja einhverja staði reyndust 6,2% yfir hásumarið og 1,6% í nóvember. Sjá nánar
Skiptingu milli þjóðerna má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.