Ábyrg ferðaþjónusta – aukum forskotið: Opið fyrir skráningu
Í lok september verður haldið áfram með námskeiðið Ábyrg ferðaþjónusta – Aukum forskotið sem hófst í vor. Vegna aukinnar eftirspurnar hefur verið ákveðið opna aftur fyrir skráningu og gefa þannig fleirum kost á að vera með. Skráning verður opin til 15. september.
Verkefnið saman stendur af sex fræðslufundum. Tveir fræðslufundir voru haldnir síðasta vor en fyrirtæki sem vilja slást í hópinn gefst kostur á að horfa á þá í upptöku og hefja svo leikinn að fullu 27. september þegar fræðsluverkefnið heldur áfram. Um 50 fyrirtæki eru nú þegar skráð.
Nánari upplýsingar og skráning
Vert er að hvetja fyrirtæki til að vera með í þessu mikilvæga verkefni til að auka forskot sitt í átt að aukinni sjálfbærni.
Framkvæmdaraðilar fræðsluverkefnisins eru Íslenski ferðaklasinn og SAF í samstarfi við Íslandsstofu, Markaðsstofur landshlutanna, Safe Travel, Ferðamálastofu,
FESTU og menningar- og viðskiptaráðuneytið.