Afgreiðsla umsókna um styrki til úrbóta í umhverfismálum
Alls bárust Ferðamálastofu 158 umsóknir um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum á yfirstandandi ári en auglýst var eftir umsóknum um styrki í byrjun janúar síðastliðinn. Umsóknirnar voru afgreiddar af Ferðamálastofu og hlutu 57 verkefni styrk að þessu sinni. Til úthlutunar voru um 40 milljónir króna sem skiptist í þrjá flokka en sótt var um samtals 209.638.250 krónur.
Minni verkefni
Í flokknum minni verkefni gátu styrkir að hámarki numið 500 þúsund krónum þar sem sérstök áhersla var lögð á uppbyggingu gönguleiða og eingöngu til efniskaupa. Alls bárust 105 umsóknir en 44 aðilar fengu styrk, samtals að upphæð 11.870.000. Af því leiðir að mörgum verðugum verkefnum varð að hafna að þessu sinni. Þetta er sama reynsla og fengist hefur á undangengnum árum þar sem fjárhæð umsókna hefur verið margföld sú upphæð sem verið hefur til ráðstöfunar.
Stærri verkefni á fjölsóttum ferðamannastöðum
Í flokkinn stærri verkefni á fjölsóttum ferðamannastöðum bárust 18 umsóknir og hlutu 6 verkefni styrk, samtals að upphæð 11.475.000 krónur. Hér er um það að ræða að umsækjendur stýra framkvæmdum sjálfir og svæðin verða í umsjón eða eigu styrkþega eftir að framkvæmdum lýkur.
Uppbygging á nýjum svæðum
Í þriðja flokkinn, uppbygging á nýjum svæðum, bárust 35 umsóknir. Úthlutað var 14.350.000 krónum sem skiptast á 7 verkefni.
Náttúran í forgangi
Til viðmunar við úthlutun er stuðst við reglur um forgangsröðun styrkja sem fylgt hefur verið síðustu ár, mikilvægi verkefna er vegið eftir því hver áhrif framkvæmdarinnar eru á náttúru og umhverfi, í meginatriðum er flokkunin eftirfarandi:
- Náttúruvernd
- Upplýsingar, og öryggismál
- Áningarstaðir
- Annað
Verkefni sem stuðla að náttúruvernd eru því forgangsverkefni. Einnig er reynt að fylgja eftir þeim opinberu markmiðum að uppbygging ferðaþjónustunnar stuðli að sjálfbærri þróun í samfélaginu.
Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu, segir umsóknarferlið hafa gengið nokkuð vel fyrir sig í ár og greinilegt að undirbúningur verkefna batnar með hverju árinu, þó eru alltaf einhverjir sem kveikja á perunni ?korter fyrir? að umsóknarfrestur rennur út og henda inn ófullkomnum og lítt úthugsuðum hugmyndum. "Það er ljóst að mörg verðug verkefni verða að bíða að þessu sinni og vissulega er alltaf erfitt að geta ekki orðið við góðum umsóknum," segir Valur.
Hér að neðan er listi yfir þá sem fengu úthlutað styrkjum í ár:
Styrkir til minni verka | |||
Sveitarfélag / svæði | Verkefni | Umsækjendur | Styrkir |
Allt landið | Göngum um Ísland -upphafsmerkingar | Ungmennafélag Íslands | 500.000 |
Neskaupstaður | Göngustígar í fólkvangi Neskaupstaðar | Náttúrustofa Austurlands | 200.000 |
Fljótsdalshreppur | Merking gönguleiða í Fljótsdal | Ferðamálanefnd Fljótsdalshrepps | 200.000 |
Berufjörður - Reyðarfjörður | Gönguleið milli fjarðanna | Göngufélag Suðurfjarða | 150.000 |
Fjarðarbyggð / Hólmanes | Gönguleiðir um Hólmanes fólkvang | Náttúrustofa Austurlands | 100.000 |
Fljótsdalshérað | Gönguleiðir í dreifbýli héraðsins | Svf. Fljótsdalshérað | 200.000 |
Svf. Hornafjöður | Kortagerð við Vatnajökulsþjóðgarð -Mýrar | Ferðamálafélag A-Skaftfellssýslu | 500.000 |
Svf. Hornafjörður / Fláajökull | Kortagerð við Fláajökul og víðar | Ferðaþjónusta bænda Brunnhól og Hólmi | 500.000 |
Svf. Hornafjörður / Haukafell | Upphafsmerkingar á gönguleiðum um Mýrar | Skógræktarfélag A - Skaftafellssýslu | 40.000 |
Svf. Hornafjörður / Illikambur | Fræðsluskilti og vegvísar á Lónsöræfum | Helga Davids, Stafafelli | 200.000 |
Svf. Hornafjörður / Suðursveit | Gönguleiðir í Staðardal | Björn Sigfússon | 200.000 |
Dalvíkurbyggð / Tröllaskagi | Göngukort á Tröllaskaga | Dalvíkurbyggð | 200.000 |
Húnaþing vestra / Gauksmýri | Aðgengi fyrir alla - Gauksmýrartjörn | Ferðam.fél. Vestur - Húnavatnssýslu | 250.000 |
Húnaþing vestra / Hvítserk | Endurnýjun vatnslagana að WC | Knútur A Óskarsson | 150.000 |
A - Húnavatnssýsla / Skagi | Gönguleiðir -Hafnir / Selvíkurtangi. Náttúruvernd | Vignir Á Sveinsso
|