Afhending hvatningarverðlauna í heilsuferðaþjónustu
07.12.2011
lóhó heilsusamtök
Þriðjudaginn 13. desember mun Katrín Júlíusdóttir veita hvatningarverðlaun iðnaðarráðherra fyrir áhugaverða heilsuferðavöru ætlaða erlendum ferðamönnum.
Athöfnin fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. 16:00.
Með það að markmiði að stuðla að áframhaldandi vöruþróun í heilsuferðaþjónustu ákvað iðnaðarráðherra að veita ein verðlaun til fyrirtækis eða hóps fyrirtækja sem starfa innan heilsugeirans.
Verðlaunaféð er ein milljón króna. Auglýst var eftir umsóknum í dagblöðum og á netinu og bárust alls 17 umsóknir.
Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni. Þátttaka tilkynnist fyrir lok dags 12.desember á netfangið heilsa@ferdamalastofa.is