Beinu Kaupmannahafnarflugi Iceland Express frá Akureyri vel tekið
Beinu flugi Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar hefur verið mjög vel tekið. Iceland Express hóf beint flug milli þessara staða í fyrrasumar og nú hefur þráðurinn verið tekinn upp aftur. Flogið er tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum, frá júníbyrjun til ágústloka. Þegar er orðið uppselt í sex brottfarir og í 15 til viðbótar hafa 90% sæta þegar verið seld. Nú er svo komið að einungis á eftir að selja um fjórðung allra miða í sumar, segir í frétt frá Iceland Express.
Töluverð söluaukning er milli ára, þrátt fyrir að sætanýting hafi verið góð síðastliðið sumar. Mest er aukningin í júlí, þar sem nær fjórðungs aukning er í seldum sætum milli ára. Seldum sætum í ágúst hefur einnig fjölgað umtalsvert frá því í fyrra, eða um rúm 14%.
Enn sem komið er eru Íslendingar í meirihluta þeirra sem ferðast á þessari leið en þó hefur erlendum ferðamönnum sem nýta sér þennan möguleika farið ört fjölgandi. Sem dæmi má nefna að þegar hafa vel á annað þúsund Danir ferðast með Iceland Express til Akureyrar eða pantað sér miða á flugleiðinni í sumar. ?Iceland Express hefur ráðist í umfangsmikla kynningu á Akureyri og Norðurlandi almennt í Danmörku að undanförnu sem virðist hafa skilað sér í auknum áhuga á þessum nýja valkosti í ferðaþjónustu þar í landi;? segir m.a. í frétt Iceland Express.