COVID 19 - Upplýsingafundur fyrir ferðaþjónustuaðila - Erindi og upptaka
23.03.2020
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Ferðamálastofa, Neytendastofa, Neytendasamtökin og Samgöngustofa stóðu í dag fyrir upplýsingafundi fyrir ferðaþjónustuna. Farið var yfir skyldur ferðaþjónustuaðila og rétt neytenda. Fundurinn var alfarið með fjarfundarfyrirkomulagi og streymt á Facebooksíðu Ferðamálastofu.
Erindi:
- Neytendastofa – Réttur ferðamanna í pakkaferð vegna COVID-19
- Ferðamálastofa – Tryggingar vegna sölu pakkaferða – hvað er til ráða
- Samgöngustofa – Réttur flugfarþega
- Neytendasamtökin – Hugleiðing um réttarstöðu neytenda á tímum COVID-19
Upptaka:
Fundinum var streymt á Facebooksíðu Ferðamálastofu og er upptaka aðgengileg þar.