Dagný nýr liðsmaður Ferðamálastofu
31.10.2008
Dagný
Dagný Fjóla Elvarsdóttir er nýjasti liðsmaður Ferðamálastofu. Dagný er kominn til starfa á skrifstofunni í Reykjavík í barnseignaleyfi Katrínar Gylfadóttur en starfaði þar raunar einnig síðastliðið sumar í sumarafleysingum.
Dagný kláraði 10 bekk í Falmouth Community School í Englandi þar sem hún var búsett í eitt ár og lauk stúdentsprófi vorið 2008 í tungumálum frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hún stundar nú nám í Ferðamálaskólanum við Menntaskólann í Kópavogi.