Dagskrá aðalfundar Ferðamálasamtaka Íslands
16.01.2007
Hótel Ísafjörður
Dagskrá aðalfundar Ferðamálasamtaka Íslands liggur nú fyrir. Fundurinn verður eins og fram hefur komið haldinn á Hótel Ísafirði fimmtudaginn 25 og föstudaginn 26 janúar 2007. Að samtökunum standa átta landshlutasamtök og að þeim eiga aðild ferðaþjónustuaðilar og sveitarfélög á viðkomandi svæðum. Formaður samtakanna er Pétur Rafnsson.
Dagskrá fundarins:
Fimmtudagur 25. janúar.
Kl.: 12:30 | Hótel Ísafjörður - Afhending fundargagna |
Kl.: 13:00 | Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands Setning - Pétur Rafnsson, formaður |
Kl.: 13:10 | Ávarp Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra |
Kl.: 13:25 | Skipað í fastanefndir aðalfundar: Kjörnefnd-Kjörbréfanefnd-Fjárhagsnefnd. |
Kl.: 13:30 | Erindi: Uppbygging Markaðsstofu Vestfjarða Jón Páll Hreinsson, framkvæmdarstjóri |
Kl.: 13:45 | Erindi: Sameinaðir kraftar koma okkur lengra, stefnumótun og miðlun upplýsinga. Stefán Stefánsson, formaður Ferðamálasamtaka Austurlands og Sævar Örn Sævarsson, vefráðgjafi og verkefnastjóri hjá IGM. |
Kl.: 14:20 | Umræður og fyrirspurnir |
Kl.: 15:00 | Kaffihlé |
Kl.: 15:30 | Aðalfundarstörf samkvæmt lögum FSÍ |
Kl.: 17:30 | Fundarlok |
Kl.: 19:00 | Móttaka í boði bæjarstjórnar |
Kl.: 20:30 | Kvöldverður og kvöldvaka Veislustjóri Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar. |
Föstudagur 26. janúar.
Kl.: 9-11 | Kynnisferð ? Ferðaþjónusta á svæðinu kynnt |
Flug til Reykjavíkur
Fundarstjóri: Ingi Þór Ágústsson, bæjarfulltrúi
- 1. Skráning á fundinn er í síma 898-6635 eða petur@icetourist.is
- Bókun herbergja á Hótel Ísafirði er á heimasíðu hótelsins. www.hotelisafjordur.is eða í síma 456-4111.
- Bókun flugs til Ísafjarðar á aðalfund FSÍ:
Hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570 3075 virka daga frá kl 9-16 eða með
e-mail hopadeild@flugfelag.is