Dagskrá Ferðamálaráðstefnunnar 2005 ? opnað fyrir skráningu
Dagskrá Ferðamálaráðstefnunnar 2005 liggur nú fyrir og þá hefur jafnframt verið opnað fyrir skráningu. Meginþema ráðstefnunnar sem haldin er á Radisson SAS Hótel Sögu, verður eins og fram hefur komið samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.
Ávörp samgönguráðherra og borgarstjóra
Ráðstefnan hefst kl. 9 fimmtudaginn 27. október með skráningu og afhendingu gagna. Að lokinni setningu flytja ávörp þau Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Steinunn V. Óskarsdóttir borgarstjóri.
Samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu
Þá er komið að Hannesi Smárasyni, stjórnarformanni FL Group, sem flytur inngangserindi ráðstefnunnar undir yfirskriftinni ?Samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.? Næst flytur erindi Anneke Dekker, framkvæmdastjóri Island Tours Hollandi, og fjallar um markaðslega samkeppnishæfni Íslands, frá sjónarhorni erlends seljanda. Menningarleg samkeppnishæfni Íslands er síðan yfirskrift næsta erindis sem Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri flytur. Að þessu loknu verða umræður og fyrirspurnir áður en tekið verður hádegishlé.
Ráðstefnu- og tónlistarhús, ný Ferðamálastofa og lokaverkefnisverðlaun
Að loknu hádegishléi verður kynning á nýju ráðstefnu- og tónlistarhúsi í Reykjavík sem Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar ehf., annast. Þá mun Magnús Oddsson, ferðamálastjóri fara yfir væntanlegar breytingar á Ferðamálaráði með stofnun Ferðamálastofu um næstu áramót. Afhending lokaverkefnisverðlauna Ferðamálaseturs Íslands fyrir árið 2005 fylgir í kjölfarið og þá almennar umræður og afgreiðsla ályktana. Ráðstefnuslit eru áætluð kl 16:00. Ráðstefnugjald er 9.000 kr.
Móttakna, kvöldverður og afhending umhverfisverðlauna
Móttaka í boði samgönguráðherra og Höfuðborgarstofu hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, kl. 18 en safnið opnar kl 17:00 fyrir þá sem vilja kynna sér sýningar safnsins. Strætó mun aka gestum frá Listasafni Reykjavíkur að Hótel Sögu þar sem kvöldverður og skemmtun hefst kl. 20. Þar verða samkvæmt venju afhent umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs Íslands fyrir árið 2005. Verð fyrir kvöldverð er 4.900 kr.
Kynning á ferðaþjónustu svæðisins
Daginn eftir, þ.e. föstudaginn 28. október, verður vettvangsferð og kynning á ferðaþjónustu svæðisins. Hefst hún kl. 10 og verður farið frá Hótel Sögu. Dagskrá skoðunarferðar PDF-skjal
Skráning á ferðamálaráðstefnu 2005 - opna skráningareyðublað
Dagskrá:Dags.: 27. og 28. október 2005
Staður: Reykjavík, Radisson SAS Hótel Saga
Dagskrá: Fimmtudagur 27. október
kl. 09:00 Skráning og afhending gagna
kl. 09:30 Setning
kl. 09:35 Ávarp samgönguráðherra, Hr. Sturla Böðvarsson
kl. 09:55 Ávarp borgarstjóra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir
kl. 10:05 Kaffihlé
kl. 10:25 Samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu
Hannes Smárason, stjórnarformaður FL Group
kl. 10:45 Markaðsleg samkeppnishæfni Íslands, frá sjónarhorni erlends seljanda
Anneke Dekker, framkvæmdastjóri Island Tours Hollandi
kl. 11:05 Menningarleg samkeppnishæfni Íslands
Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri
kl. 11:25 Umræður og fyrirspurnir
kl. 11:45 Hádegisverðarhlé
kl. 13:00 Kynning á nýju ráðstefnu- og tónlistarhúsi í Reykjavík
Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar ehf.
kl. 13:30 Ferðamálastofa vs. Ferðamálaráð, hvers ber að vænta?
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri
kl. 14:00 Fyrirspurnir
kl. 14:15 Afhending lokaverkefnisverðlauna Ferðamálaseturs Íslands fyrir árið 2005
kl. 14:30 Kaffihlé
kl. 14:50 Almennar umræður og afgreiðsla ályktana
kl. 16:00 Ráðstefnuslit
kl. 18:00 Móttaka í boði samgönguráðherra og Höfuðborgarstofu í Listasafni Reykjavíkur,
Ath. safnið opnar kl 17:00 fyrir þá sem vilja kynna sér sýningar safnsins
kl. 19:30 Strætó frá Listasafni Reykjavíkur að Hótel Sögu
kl. 20:00 Kvöldverður og skemmtun, skráning hjá Ferðamálaráði
Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálaráðs Íslands fyrir árið 2005
Dagskrá: Föstudagur 28. október
kl. 10:00 Vettvangsferð og kynning á ferðaþjónustu svæðisins
Ráðstefnustjórar:
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Dagskrá ferðamálaráðstefnu 2005 ? prentvæn útgáfa (PDF)