Drög að frumvarpi um ferðamál
14.12.2011
Maður á gangi - vetur
Vert er að benda á að Iðnaðarráðuneytið hefur óskað eftir skriflegum athugasemdum við drög að frumvarpi um breytingu á lögum um skipan ferðamála.
Helstu atriðin í drögunum:
- Verkefnum Ferðamálastofu breytt í samræmi við breytingar á starfsemi stofnunarinnar með stofnun Íslandsstofu og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
- Ferðamálaráð lagt niður í núverandi mynd og í stað þess komið á fót Samráðsvettvangi um ferðamál.
- Skilgreiningar á leyfisskyldri starfsemi nákvæmari en áður og skerpt á því hvernig trygging er ákvörðuð.
- Ferðaskrifstofuleyfi veitt til fimm ára en þau eru nú ótímabundin.
- Kveðið á um skyldu allra þeirra aðila sem bjóða upp á ferðir hér á landi til að afhenda Ferðamálastofu öryggisáætlun með mati á áhættu viðkomandi ferðar og lýsingu á því hvernig viðkomandi hyggist bregðast við beri vá að höndum í ferðinni.
- Ferðafélög sæki um ferðaskrifstofuleyfi en t.d. Ferðafélag Íslands og Útivist hafa verið undanþegin slíkum leyfum.
Athugasemdirnar óskast sendar á postur@idn.stjr.is fyrir 31. des. n.k.
- Drögin í heild:
Drög að frumvarði um ferðamál (PDF)
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson / arctic-images.com