Gistinætur heilsárshótela í janúar
Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í október síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast þannig hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
Gistinóttum fjölgaði um 25% á hótelum í janúar
Gistinætur á hótelum í janúar voru 90.300 og fjölgaði um 25% frá janúar í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 13%.
Á höfuðborgarsvæðinu voru 73.600 gistinætur á hótelum í janúarmánuði og fjölgaði um 23% frá sama mánuði í fyrra. Gistinóttum fjölgaði einnig umtalsvert á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða, voru 2.100 nú en 900 í janúar í fyrra. Á Norðurlandi voru 3.800 gistinætur í janúar og fjölgaði um 55% frá því í fyrra en á Austurlandi voru 1.300 gistinætur og fjölgaði um 58%. Á Suðurnesjum voru um 4.400 gistinætur í janúar, en það er 25% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurlandi voru gistinætur tæplega 5.200 sem er álíka mikið og í janúar í fyrra.
Nánar á vef Hafstofunnar.