Ensk útgáfa af tölfræðiriti Ferðamálastofu
23.03.2011
enska - ferðaþjónusta í tölum
Tölfræðibæklingur Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum, er nú kominn út í enskri útgáfu. Í honum má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu og eru niðurstöðurnar settar fram á myndrænan hátt með stuttum skýringatextum.
Líkt og íslenski bæklingurinn, sem út kom í byrjun mánaðarins, er enski bæklingurinn einöngu gefinn út í rafrænu formi, bæði sem PDF og vefútgáfa. Bæklingnum í PDF formi er auðvelt að hlaða niður og vista á eigin tölvu.
Meðal efnis í bæklingnum er eftirfarandi:
- Ferðaneysla innanlands eftir vöruflokkum, fjöldi ferðaþjónustustarfa og hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu og heildarútflutningstekjum.
- Erlendir ferðamenn til Íslands eftir komustöðum.
- Fjöldi gesta með skemmtiferðaskipum.
- Erlendir ferðamenn til Íslands um Keflavíkurflugvöll eftir mánuðum og tímabilum.
- Gistinætur á hótelum eftir mánuðum.
- Erlendir ferðamenn á Íslandi 2009-2010 (kyn, aldur, tilgangur ferðar, ferðafélagar, tegund ferðar, dvalarlengd).
- Erlendir ferðamenn á Íslandi sumarið 2010 (hver er hvatinn að Íslandssferð, hvaða afþreying er nýtt, hvað finnst ferðamönnum minnisstæðast við Íslandsferðina og finnst fólki ferðin standa undir væntingum).
- Ferðalög Íslendinga árið 2010 í samanburði við ferðalög á árinu 2009 (hvenær ferðast Íslendingar á árinu og hvert, hversu lengi dvelja þeir, hvaða afþreyingu nýta þeir og hvaða gistingu).
- Ferðaáform Íslendinga 2011.
Hlaða niður Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum, enska - mars 2011: