Erlendir gestir í júlí 2008
Brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð í júlímánuði síðastliðnum voru 78.100, eða um 2.600 færri en í júlímánuði á árinu 2007. Erlendum gestum fækkaði því um 3,2% á milli ára.
Af einstökum markaðssvæðum er fækkunin mest frá N-Ameríku eða um 18,7%. Bretum fækkar um 13,6% og Norðurlandabúum um 8,7%. Mið- og S-Evrópubúum fækkar lítillega eða um 1,2%. Gestum frá öðrum Evrópulöndum og fjarmörkuðum fjölgar hins vegar um tæp 14%. Brottförum Íslendinga fækkar um ríflega 14%.
Hér að neðan má sjá fjölda gesta um Leifsstöð í júlí skipt eftir markaðssvæðum og þjóðernum en heildarniðurstöður úr talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð má finna hér á vefnum undir liðnum Talnaefni / Fjöldi ferðamanna.
Ferðamenn í júlí eftir markaðssvæðum | |||
2007 | 2008 |
Breyting milli ára 2007-08 (%) | |
Norðurlönd | 19.229 | 17.542 | -8,7 |
Bretland | 8.775 | 7.584 | -13,6 |
Mið og S-Evrópa | 25.806 | 25.484 | -1,2 |
N-Ameríka | 9.721 | 7.901 | -18,7 |
Annað | 17.230 | 19.633 | 13,9 |
Samtals | 80.761 | 78.144 | -3,2 |
Ferðamenn í júlí eftir þjóðernum | |||
2007 | 2008 |
Breyting milli ára 2007-08 (%) | |
Bandaríkin | 8.548 | 6.064 | -29,1 |
Bretland | 8.775 | 7.584 | -13,6 |
Danmörk | 7.583 | 7.317 | -3,5 |
Finnland | 1.700 | 1.508 | -11,3 |
Frakkland | 5.917 | 5.908 | -0,2 |
Holland | 3.103 | 3.334 | 7,4 |
Ítalía | 2.079 | 1.776 | -14,6 |
Japan | 707 | 550 | -22,2 |
Kanada | 1.173 | 1.837 | 56,6 |
Kína | 1.873 | 940 | -49,8 |
Noregur | 4.817 | 4.174 | -13,3 |
Pólland | 2.907 | 3.544 | 21,9 |
Rússland | 125 | 73 | -41,6 |
Spánn | 1.986 | 1.797 | -9,5 |
Sviss | 2.283 | 2.350 | 2,9 |
Svíþjóð | 5.129 | 4.543 | -11,4 |
Þýskaland | 10.438 | 10.319 | -1,1 |
Annað | 11.618 | 14.526 | 25 |
80.761 | 78.144 | -3,2 | |
Ísland | 49.311 |
|