Erlendir gestir yfir hálfa milljón í fyrsta sinn
Alls fóru 502 þúsund erlendir gestir frá landinu á árinu 2008 en 2007 voru þeir 485 þúsund talsins. Aukningin er um 17 þúsund eða 3,5%. Langflestir eða um 94,1% fóru um Leifsstöð, 2,9% um Reykjavíkur-, Akureyrar eða Egilsstaðaflugvöll og 2,9% með Norrænu um Seyðisfjörð.
Þetta er í fyrsta sinn sem erlendir gestir fara yfir hálfa milljón á einu ári. Farþegar skemmtiferðaskipa eru ekki inn í þessum tölum og koma því til viðbótar.
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð fóru 472.500 erlendir gestir frá landinu um flugvöllinn á árinu 2008, sem er aukning um 13.500 gesti eða 2,9% frá árinu áður. Allar brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð eru inni í þessum talningum, þ.m.t.brottfarir erlends vinnuafl.
Þróun á mörkuðum
Nokkur fjölgun var frá Mið-Evrópu á árinu 2008 í samanburði við fyrra ár, Hollendingum fjölgaði um 30,4%, Frökkum um 15% og Þjóðverjum um 11%. Fjöldi Norðurlandabúa stóð í stað. Spánverjum fjölgaði um 10% og eru nú í fyrsta sinn fjölmennari en Ítalir sem fækkaði um tæp 4%. Bretum fækkaði um tæp 5% og Bandaríkjamönnum um 23%. Kanadabúum fjölgaði hins vegar um 68% á árinu. Brottförum annarra landa Evrópu og fjarmarkaða fjölgaði um 11%.
Brottförum Íslendinga milli ára (2007-2008) fækkaði um 10%, mest munar um fækkun síðustu þrjá mánuði, ársins, október til desember, en þá fækkaði brottförum um helming, fóru úr 113 þúsundum í 61 þúsund.
Horfur 2009
Þó svo samkeppni fari harðnandi í ferðaþjónustu á alþjóðavísu má gera ráð fyrir aukningu í komum erlendra gesta til Íslands á árinu 2009. Ótryggt efnahagsástand á ferðamörkuðum og margir óvissuþættir gera það að verkum að menn verða þó stöðugt að vera á varðbergi. Íslensku flugfélögin hafa lagað sig að breyttum aðstæðum, minnkað sætaframboð í kjölfar mikils samdráttar í utanferðum Íslendinga og aukið markaðssókn á erlendum mörkuðum. Staða bókana næstu mánuðina bendir til nokkurrar aukningar í gestafjölda og þar með viðunandi ferðaárs fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Hér að neðan má sjá fjölda gesta skipt eftir markaðssvæðum, þjóðerni og mánuðum. Heildarniðurstöður úr talningunum eru undir liðnum "Talnaefni" hér á vefnum.
Brottfarir um Leifsstöð eftir þjóðerni 2008/2007 |
|||
|
2007 |
2008 |
Fjölgun/fækkun |
Bandaríkin |
51.909 |
40.491 |
-22,0 |
Bretland |
73.391 |
69.936 |
-4,7 |
Danmörk |
41.392 |
41.012 |
-0,9 |
Finnland |
9.875 |
10.792 |
9,3 |
Frakkland |
22.671 |
26.161 |
15,4 |
Holland |
14.405 |
18.756 |
30,2 |
Ítalía |
10.475 |
10.113 |
-3,5 |
Japan |
6.096 |
6.716 |
10,2 |
Kanada |
6.296 |
10.568 |
67,9 |
Noregur |
34.779 |
35.121 |
1,0 |
Spánn |
9.455 |
10.438 |
10,4 |
Sviss |
6.911 |
7.134 |
3,2 |
Svíþjóð |
33.356 |
32.255 |
-3,3 |
Þýskaland |
40.556 |
45.111 |
11,2 |
Önnur lönd |
97.432 |
107.931 |
10,8 |
Samtals |
458.999 |
472.535 |
2,9 |
|
|
|
|
Ísland |
451.900 |
406.587 |
-10,0 |
|
|
|
|
Brottfarir um Leifsstöð eftir markaðssvæðum 2008/2007 |
|||
|
2007 |
2008 |
Fjölgun/fækkun |
N.-Ameríka |
58.205 |
51.059 |
-12,3 |
Bretland |
73.391 |
69.936 |
-4,7 |
Norðurlönd |
119.402 |
119.180 |
0,2 |
Evrópa |
104.473 |
117.713 |
12,7 |
Annað |
103.528 |
114.647 |
10,7 |
Samtals |
458.999 |
472.535 |
2,9 |
|
|
|
|
Heimild: Ferðamálastofa. Brottfarir í Leifsstöð. |
|
<TD class=xl74 sty
Brottfarir um Leifsstöð eftir mánuðum2008/2007 | |||
Erlendir gestir | |||
2007 | 2008 |
Fjölgun/fækkun |
|
Janúar | 18.810 | 20.289 | 7,9 |
Febrúar | 17.647 | 20.312 | 15,1 |
Mars | 23.700 |